Verslunarmenn funda fyrir hádegi

Bakland LÍV fundar um gang kjaraviðræðna fyrir hádegi í dag
Bakland LÍV fundar um gang kjaraviðræðna fyrir hádegi í dag Ljósmynd/vr.is

Aðildarfélög Landssamands íslenskra verslunarmanna (LÍV) funda nú fyrir hádegi, en þar er farið yfir stöðu samningaviðræðna breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins (SA). Samkvæmt heimildum mbl.is hófust fundarhöld klukkan 10.

Vitað er að deiluaðilar sátu í Karphúsinu í tæpar ellefu klukkustundir í gær en boðað var til nýs fundar klukkan níu í morgun.

Sam­kvæmt heim­ild­um Morg­un­blaðsins hafa nú öll fé­lög­in inn­an breiðfylk­ing­ar­inn­ar skrifað und­ir sam­komu­lagið nema VR og LÍV. Hafði breiðfylkingin, utan VR og LÍV, náð samkomulagi við SA um forsenduákvæði í samningum hvað varðar að skapa skilyrði sem styðja við markmið um að ná niður verðbólgu og vöxtum, en það hafði verið helsti ásteytingarsteinninn í viðræðunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert