Gert ráð fyrir 800 metra langri gossprungu

Gossprungan við Grindavík 17. janúar.
Gossprungan við Grindavík 17. janúar. mbl.is/Árni Sæberg

Hraunflæðilíkön gera ráð fyrir stöðugu hraunflæði upp á 600 rúmmetra á sekúndu úr 800 metra langri gossprungu í næsta eldgosi. Krist­ín Jóns­dótt­ir, deild­ar­stjóri á Veður­stof­unni, kynnti líkönin og líklegar sviðsmyndir næsta eldgoss á íbúafundi Grindvíkinga í kvöld. 

Líklegast þykir að kvikan leiti frá Svartsengi yfir í Sundhnúkagígaröðina og að gos komi upp á svæðinu milli Stóra-Skógfells og Hagafells. 

Í tilkynningu á vef Veðurstofunnar segir að ef horft er til fyrri eldgosa á svæðinu gæti eldgos hafist með litlum fyrirvara, innan við 30 mínútur, allt eftir því hvar á Sundhnúkagígaröðinni kvika kemur upp.

Milli Sýlingarfells og Stóra-Skógfells

Fyrsta sviðsmyndin er dregin af eldgosunum milli Sýlingarfells og Stóra-Skógfells, líkt og 18. desember og 8. febrúar. 

Kort sem sýnir líklega gossprungu og hraun ef eldgos hefst …
Kort sem sýnir líklega gossprungu og hraun ef eldgos hefst á milli Sýlingarfells og Stóra-Skógfells. Kort/Veðurstofa Íslands

Þá er líklegt að aðdragandinn verði skyndileg, staðbundin og áköf smáskjálftavirkni. Fyrirvarinn yrði mjög stuttur eða innan við 30 mínútur þar sem kvika á auðvelda leið til yfirborðs vegna fyrri umbrota. 

Hraun gæti þá náð að Grindavíkurvegi innan við fjögurra klukkustunda. 

Við Hagafell

Ef til eldgoss kæmi við Hagafell, líkt og 14. janúar, þá yrði aðdragandinn smáskjálftavirkni á Sundhnúkagígaröðinni sem byrjar við Sýlingarfell og færist suður.

Kort sem sýnir gossprungu og hraun ef gýs við Hagafell.
Kort sem sýnir gossprungu og hraun ef gýs við Hagafell. Kort/Veðurstofa Íslands

Líklegur fyrirvari yrði um ein til þrjár klukkustundir frá því að fyrstu skjálftar mælast og eldgos hefst. 

Hraun myndi þá ná varnargörðum við Grindavík á klukkustund.

Þá er líklegt að kvikuinnskot sem nær suður fyrir Hagafell valdi líklega verulegum sprunguhreyfingum í Grindavík.

Innan varnargarða

Ef eldgos hefst innan varnargarða yrði aðdragandinn smáskjálftavirkni á Sundhnúkagígaröðinni sem byrjar við Sýlingarfell og færist suður. 

Líklegur fyrirvari yrði um ein til fimm klukkustundir frá því að fyrstu skjálftar mælast og eldgos hefst. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert