Styðja við stjórnsýslu og fjárhag Grindavíkurbæjar

Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur og Sigurður Ingi Jóhannesson innviðaráðherra við …
Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur og Sigurður Ingi Jóhannesson innviðaráðherra við undirritun samkomulagsins. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Fannar Jónasson bæjarstjóri í Grindavík undirrituðu fyrr í dag samkomulag um stuðning við stjórnsýslu og fjárhag Grindavíkurbæjar.

„Íbúar og bæjarstjórn Grindavíkur takast nú á við fordæmalausar aðstæður sem munu á næstu mánuðum reyna mjög á getu sveitarfélagsins til að sinna skyldum sínum á sviði stjórnsýslu, fjármála og lögbundinna verkefna þess,“ segir í tilkynningu innviðaráðuneytisins.

Ljóst sé að ástand mikilvægra innviða í sveitarfélaginu sé slæmt í kjölfar jarðhræringa í Grindavík og að koma þeim í gott lag verði bæði tímafrekt og kostnaðarsamt.

Mannvirki í eigu bæjarins séu sum mjög illa farin eða ónýt og það muni kosta tíma og fjármuni að tryggja að grunnþjónusta geti aftur farið fram í bænum. Á sama tíma sé rekstrarhæfi sveitarfélagsins ógnað vegna fyrirsjáanlegs tekjufalls.

Skuldir sveitarfélagsins óverulegar

Áður hafi rekstur bæjarfélagsins aftur á móti staðið traustum fótum og skilað góðum afgangi á sama tíma og skuldir sveitarfélagsins hafi verið óverulegar.

Markmið samkomulagsins sé því að styðja við stjórnsýslu og fjárhagsmálefni Grindavíkurbæjar, leggja mat á rekstrarhæfi sveitarfélagsins og stuðla að því að upplýstar ákvarðanir um aðgerðir til að aðlaga rekstur sveitarfélagsins að gjörbreyttum aðstæðum í kjölfar náttúruhamfara verði teknar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert