„Þetta er algjörlega með ólíkindum“

At­vikið sem átti sér stað á Reykja­nes­braut­inni í gær, þegar ökumaður keyrði rútu á móti um­ferð á öf­ug­um veg­ar­helm­ingi, er litið alvarlegum augum af lögreglunni.

Þetta segir Sævar Guðmundsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.

Hann segir að lögreglan verði með atvikið til skoðunar og að það verði stofnað mál í kringum þetta.

„Þetta er auðvitað mjög alvarlegt. Þetta setur fjölda vegfarenda í stórkostlega hættu með þessum hætti. Maður náttúrulega skilur ekki hvernig í ósköpunum – eða hvað verður þess valdandi að hann fer bara yfir á öfugan vegarhelming. Þetta er algjörlega með ólíkindum,“ segir Sævar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert