Skordýr og örþörungar nýjustu próteingjafarnir

Markmiðið með nýjum próteingjöfum á borð við skordýr og örþörunga …
Markmiðið með nýjum próteingjöfum á borð við skordýr og örþörunga er að minnka umhverfisáhrif, draga úr sóun, vatnsnotkun og kolefnisspori. Ljósmynd/Matís

Matís hefur sýnt fram á að hægt sé að þróa matvöru fyrir fólk og fóður fyrir dýr sem inniheldur próteingjafa á borð við skordýr og örþörunga. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matís, sem hefur að undanförnu leitt verkefni sem ber yfirskriftina NextGenProteins og er eitt það stærsta sem fengist hefur styrkur fyrir á Íslandi. 

„Markmiðið með nýjum próteingjöfum á borð við skordýr og örþörunga er að minnka umhverfisáhrif, draga úr sóun, vatnsnotkun og kolefnisspori,“ segir í tilkynningunni. 

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra með teymi Matís.
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra með teymi Matís. Ljósmynd/Matís

Mikilvægt að fjölga sjálfbærum próteingjöfum

Um er að ræða evrópskt samstarfsverkefni sem styrkt var af Horizon 2020-sjóðnum og miðaði að því að þróa, hagræða og fínstilla framleiðslu þriggja nýpróteina sem framleidd eru á sjálfbæran hátt og fullgilda notkun þeirra í ýmsum matvælum og fóðri.

Það var Birgir Örn Smárason, fagstjóri hjá Matís, sem leiddi verkefnið en því lauk seint á síðasta ári eftir fjögurra ára vinnu. Haft er eftir Birgi í tilkynningunni að mikilvægt sé að fjölga sjálfbærum valmöguleikum þegar kemur að próteingjöfum í mat þar sem jarðarbúum fer hratt fjölgandi og fæða þurfi mun fleiri munna í heiminum innan fárra ára. 

„Próteinin sem voru til skoðunar í verkefninu voru skordýraprótein unnin úr hliðarafurðum matvælaframleiðslu, einfrumuprótein sem er gersveppamassi sem þrífst á sykrum afurða úr skógarvinnslu og örþörungar sem ræktaðir eru að miklu leiti á útblæstri koltvíoxíðs, C02, úr orkuvinnslu jarðvarmavirkjunar á Hellisheiði,“ segir í tilkynningunni. 

Grænmetisbollur með gerpróteini.
Grænmetisbollur með gerpróteini. Ljósmynd/Matís

Öllum markmiðum verkefnisins náð 

Gerðar voru fjölbreyttar neytendakannanir og skynmat á vörum með nýju próteingjöfunum í verkefninu til fá mikilvæga innsýn neytandans. Bæði með því að skoða hvað neytendur vilja borða en jafnframt til að skoða hvernig neytendur vilja borða það. 

„Sýnt var fram á leiðir til þess að vinna með neytendum og fá þeirra samþykki og við lögðum fram stefnumarkandi tillögur í þeim tilgangi að einfalda og breyta regluverki og stefnumálum stjórnvalda í átt að sjálfbærara matvælakerfi,“ er haft eftir Birgi í tilkynningunni.

Þá segir jafnframt að öllum helstu markmiðum verkefnisins hafi verið náð og að slíkur árangur geti rutt veginn fyrir nýsköpun og lausnum við þeim áskorunum sem núverandi matvælakerfi heimsins standa frammi fyrir. 

Að aukin framleiðsla og neysla nýrra próteina gæti gengt mikilvægu hlutverki við endurheimt vistkerfa og minnkað kolefnisfótspor landbúnaðar á heimsvísu, sem samkvæmt nýlegum áætlunum FAO eru ábyrg fyrir 31% af losun gróðurhúsalofttegunda af mannanna völdum. 

„Rannsóknir á borð við þessar snúast þannig ekki aðeins um breytingar á mataræði heldur eru þær grundvöllur fyrir sjálfbærari framtíð jarðarinnar og ört fjölgandi íbúa hennar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka