Þetta eru nýju umferðarskiltin

Yfir fjörutíu ný umferðarskilti verða tekin í notku og tvenn …
Yfir fjörutíu ný umferðarskilti verða tekin í notku og tvenn ný umferðarljós. Samsett mynd

Umferðarskilti sem tákna lágmarkshraða, umferðartafir, göngugötur og hjólareinar eru meðal þeirra rúmlega fjörutíu skilta sem verða tekin í notkun, auk sérstakra umferðarljósa fyrir hjólandi vegfarendur.

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur undirritað nýja heildarreglugerð um umferðamerki og notkun þeirra og með þessu verða.

Tekin eru upp á fimmta tug nýrra umferðarmerkja, á annan tug nýrra yfirborðsmerkinga og tvenn ný umferðarljós, að því er fram kemur í tilkynningu á vef innviðaráðuneytisins.

Breytingar eru þá gerðar á útliti á yfir fjörutíu merkjum og yfir sextíu merki eru felld á brott, nær alfarið þjónustumerki. Nýju merkin taka gildi þann á morgun, föstudaginn 1. mars 2024.

Þung umferð á Miklubraut að morgni til. „Víða erlendis tíðkast …
Þung umferð á Miklubraut að morgni til. „Víða erlendis tíðkast að hafa breytilegan hámarkshraða sem tekur mið af aðstæðum og það er eitthvað sem mætti skoða á Íslandi,“ segir Björn um stefnuna hérlendis. mbl.is/Árni Sæberg

En hver eru þessi nýju merki?

Fjögur ný viðvörunarmerki eru tekin upp, sem tákna holur, skerta sýn vegna veðurs, umferðartafir og slys. Hægt er að sjá öll merkin á vef Samgöngustofu en mbl.is hefur safnað þeim helstu saman.

Ætla má að merki 115, 149 og 153 verði fyrst …
Ætla má að merki 115, 149 og 153 verði fyrst og fremst notuð sem breytileg umferðarmerki þegar við á. Skjáskot/Samgöngustofa

Nýr flokkur forgangsmerkja er tekinn upp, þar sem má meðal annars finna nýtt merki: Fléttuakstur. Það er notað þar sem tveir umferðarstraumar renna saman í einn og mælst er til að fremstu bílar úr straumunum tveimur skiptist á að aka áfram.

Skiltið táknar svokallaða tannhjólareglu eða fléttuakstur.
Skiltið táknar svokallaða tannhjólareglu eða fléttuakstur. Skjáskot/Samgöngustofa

Þá er einnig tekið upp nýtt merki þar hvorki gangandi né hjólandi umferð er leyfð. einnig er sérstakt merki tekið upp fyrir hjólareinar.

Umferð gangandi vegfarenda og hjólreiðar bannaðar.
Umferð gangandi vegfarenda og hjólreiðar bannaðar. Skjáskot/Samgöngustofa
Nýtt skilti sem ´táknar hjólarein hefur verið tekið upp.
Nýtt skilti sem ´táknar hjólarein hefur verið tekið upp. Skjáskot/Samgöngustofa

Lágmarkshraði

Nú eru komin sérstök boðmerki sem tákna heldur lágmarkshraða sem á skal aka. Skiltin geta einnig átt við um sérstaka akrein á tilteknum vegi.

Þessi skilti tákna lágmarkshraða.
Þessi skilti tákna lágmarkshraða. Skjáskot/Samgöngustofa

Þá er einnig nýtt skilti sem sýnir hvar þarf að borga bílastæðagjald.

Þetta nýja skilti er merkir bifreiðastæði með gjaldskyldu.
Þetta nýja skilti er merkir bifreiðastæði með gjaldskyldu. Skjáskot/Samgöngustofa

Sem fyrr segir eru tvenn ný umferðarljós tekin upp með reglugerðinni: annars vegar ljós fyrir gangandi vegfarendur, hins vegar sérstök akreinaljós sem gilda aðeins fyrir eina akrein.

Sérstök umferðarljós verða fyrir hjólandi vegfarendur.
Sérstök umferðarljós verða fyrir hjólandi vegfarendur. Skjáskot/Samgöngustofa
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert