Enn eru hættur á svæðinu

Horft yfir Grindavík.
Horft yfir Grindavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fáir Grindvíkingar kjósa að dvelja í bænum næturlangt.  Þeim er það heimilt en lögreglustjóri mælir ekki með því. 

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum en þar segir að lögreglustjóri bendir á að líklegast e að það styttist í næsta gos og biður fólk að taka tillit til þess. Fyrirvari næsta eldgoss geti orðið mjög stuttur.

Uppfært kl. 15:55.

Upphaflega kom fram í tilkynningu lögreglustjórans að í kvöld yrðu viðvörunarflautur í Grindavík prófaðar. Í uppfærðri tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að flauturnar verði ekki reyndar í kvöld, eins og áður kom fram. Leiðréttist þetta hér með

Líklegast að kvikan leiti frá Svartsengi yfir í Sundhnúkagígaröðina

„Það er mat vísindamanna að ef til eldgoss kemur, er líklegast að kvikan leiti frá Svartsengi yfir í Sundhnúkagígaröðina og að gos komi upp á svæðinu milli Stóra-Skógfells og Hagafells. Merki um að kvika sé að brjóta sér leið upp á yfirborðið kæmu fram í skyndilegri, staðbundinni og ákafri smáskjálftavirkni.

Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum.
Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ef horft er til fyrri eldgosa á svæðinu gæti nýtt eldgos hafist með skömmum fyrirvara, innan við 30 mínútur, allt eftir því hvar á Sundhnúkagígaröðinni kvika kemur upp.  Ekki er hægt að útiloka að gos komi upp inn í Grindavík þótt það teljist ólíklegt,“ segir í tilkynningunni.

Hættur enn á svæðinu

Enn eru hættur á svæðinu í kjölfar eldgoss við Stóra Skógfell og aðstæður innan og utan hættusvæða geta breyst með litlum fyrirvara.  Þá geta hættur leynst utan merktra svæða.  Land rís í Svartsengi og merki eru um að það styttist í næsta gos vegna þeirrar kviku sem safnast nú saman undir Svartsengi.

Lokunarpóstar eru við Bláalónsveg, Nesveg og Suðurstrandarveg.  Þá er ekki hægt að aka Grindavíkurveg inn til Grindavíkur þar sem hraun rann yfir þjóðveginn í eldgosinu 14. janúar sl.

Mikilvægt er að hafa neðangreint í huga.

· Íbúar og starfsmenn fari inn í bæinn á eigin ábyrgð.   Hver og einn verður að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafnaleysi.  Lögreglustjóri tekur skýrt fram að Grindavík er ekki staður fyrir barnafólk eða börn að leik.   Þar eru ekki starfræktir skólar og innviðir eru í ólestri.  Lögreglustjóri mælir ekki með því að fólk dvelji í bænum.

· Jarðsprungur eru víða í og við bæinn og sprungur geta opnast án fyrirfara.   Hætta er metin töluverð á jarðfalli ofan í sprungur og sprunguhreyfingum.  Mótvægisaðgerðir eru og hafa verið í gangi sem felast m.a. í kortlagningu, jarðkönnun, jarðsjármælingum og sjónskoðun.  Þá hafa sprungur verið girtar af.

· Opin svæði í og við Grindavík hafa ekki verið skoðuð sérstaklega.  Fólk haldi sig við götur bæjarins og forðist að fara út á lóðir og önnur opin svæði.

· Grindavík er lokuð öllum öðrum en viðbragðsaðilum, íbúum bæjarins, starfsmönnum fyrirtækja bæjarins og þeim sem þurfa að aðstoða íbúa.  Fjölmiðlafólk hefur heimild til að fara inn í bæinn með sama hætti og íbúar og starfsmenn fyrirtækja.   

· Á starfssvæði Bláa Lónsins og HS orku er talin töluverð hætta á hraunflæði.   Um tíma þrengdi að aðkomuleiðum þegar hraun rann yfir Grindavíkurveg og lokaði leiðinni inn að Bláa Lóninu, Northern Light Inn og HS orku.  Lagður var vegur yfir ný runnið hraunið og aðkoma um Grindavíkurveg opnuð að nýju. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert