Fjórir handteknir í fíkniefnamáli

Í síðustu viku lagði Tollgæslan hald á tæplega 7 lítra af amfetamínbasa, sem reynt var að flytja til landsins í tveimur sendingum.

Í framhaldinu tók lögreglan á höfuðborgarsvæðinu við rannsókn málsins og handtók fjóra aðila á þrítugs- og fertugsaldri, en þeir voru allir úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna.

Tveimur þeirra hefur verið sleppt úr haldi, en hinir voru í dag úrskurðaðir í áframhaldandi vikulangt gæsluvarðhald, að því er lögreglan greinir frá í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert