Hóflegar launahækkanir nægja ekki einar og sér

Ragnar Þór Ingólfsson er formaður VR. VR og LÍV hafa …
Ragnar Þór Ingólfsson er formaður VR. VR og LÍV hafa óskað formlega eftir því við ríkissáttasemjara að hann hlutist til um viðræður við SA vegna kjarasamninga félaganna. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hóflegar launahækkanir nægja ekki einar og sér að mati viðræðurnefndar VR og LÍV

Þetta kemur í yfirlýsingu á vef VR. 

Þar kemur fram, að viðræðunefnd VR og Landssambands íslenskra verzlunarmanna (LÍV) hafi fundað stíft í vikunni og farið yfir stöðuna í kjaraviðræðum.

Bent er á að VR og LÍV hafi slitið sig frá samstarfi á vettvangi breiðfylkingar sem einnig var mynduð SGS, Eflingu og Samiðn. Í kjölfarið funduðu samninganefndir VR og LÍV og mynduðu sérstaka viðræðunefnd til að halda viðræðum áfram. Trúnaðarráð VR kom einnig saman í vikunni til að ráða ráðum sínum.

Mikilvæg atriði standa út af

„Að mati viðræðunefndar standa út af mikilvæg atriði sem varða félagsfólk VR og LÍV og verður að leiða til lykta svo hægt sé að ljúka kjarasamningagerð. Við upphaf viðræðna milli breiðfylkingarinnar og SA var rætt um breiða kjarasamninga sem myndu vera í líkingu við þjóðarsátt með það að markmiði að koma böndum á verðbólguna og stuðla að ásættanlegu vaxtastigi. Greindir voru fjórir samhangandi þættir sem gætu náð því markmiði, það er að segja hóflegar launhækkanir, endurreisn stuðningskerfa launafólks í gegnum vaxta- og barnabætur, sterk forsenduákvæði svo endurskoða megi samninga ef markmið þeirra ganga ekki eftir og víðtæk sátt um að koma í veg fyrir verðlagshækkanir. Til viðbótar hefur það verið mat VR og LÍV að ná þurfi tökum á húsnæðismálum og treysta varnir fyrir bæði húsnæðiseigendur og leigjendur,“ segir í yfirlýsingunni. 

Almennu launafólki gert að bera eitt byrðarnar

Þá segir, að VR og LÍV hafi fallist á að fara fram með hóflegar kröfur um launahækkanir í þessu samhengi. Af þessum atriðum standi eingöngu hóflegar launahækkanir eftir. Verði það niðurstaðan sé ljóst að almennu launafólki verður gert að bera eitt byrðarnar af því að ná verðbólgunni niður, sem það átti ekki þátt í að stofna til. Enn fremur sé hætt við að markmiðin náist ekki þar sem atvinnurekendur hafa ekki fallist á að axla ábyrgð á verðhækkunum og hafi skellt skollaeyrum við sjálfsögðum kröfum um sterk forsenduákvæði.

Enn fremur segir, að á vettvangi VR og LÍV séu einnig ýmis sérmál sem ekki hafi gefist færi á að ræða. Megi þar nefna atriði sem lúti að starfsmenntamálum og starfsreynslu ungmenna, en einnig samninga varðandi kjör starfsfólks í flugafgreiðslu á Keflavíkurflugvelli en þar sé starfað eftir vinnufyrirkomulagi sem þekkist hvergi annars staðar á íslenskum vinnumarkaði.

Sáttasemjari hlutist til um vðræður við SA vegna kjarasamninga

„VR og LÍV hafa óskað formlega eftir því við ríkissáttasemjara að hann hlutist til um viðræður við SA vegna kjarasamninga félaganna. Það er áríðandi að hefja viðræður þegar í stað um þau atriði sem að framan greinir og ná samstöðu um kjarasamninga til næstu ára.

Félagsfólk LÍV telur ríflega 47 þúsund að VR meðtöldu og er því stærsta samband launafólks á Íslandi. Í viðræðunefnd sitja fyrir hönd VR Ragnar Þór Ingólfsson, Bjarni Þór Sigurðsson, Halla Gunnarsdóttir, Ólafur Reimar Gunnarsson, Selma Björk Grétarsdóttir og Þórir Hilmarsson og fyrir hönd Landssambands ísl. verzlunarmanna Eiður Stefánsson,“ segir í yfirlýsingunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert