Lögreglan leitar að manni

Lögreglan leitar mannsins.
Lögreglan leitar mannsins. Ljósmynd/Lögreglan

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi myndum.

Hann er vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000, að því er segir í tilkynningu.

Ef einhver þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hin sömu einnig beðin um að hringja í lögregluna.

Upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is

„Þótt myndirnar séu óskýrar má ætla að þær geti gefið vísbendingar um hver maðurinn er,” segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert