Lenti undir snjóflóði í Stafdal

Einn lenti undir þegar snjóflóð féll í Stafdal við skíðasvæði ofan Seyðisfjarðar síðdegis í dag. Svæðinu hefur nú verið lokað þar til metið hefur verið hvort hætta er enn til staðar.

Lögreglunni var tilkynnt um snjóflóðið laust eftir klukkan 16 í dag. Tveir voru á svæðinu þegar flóðið féll og lenti annar þeirra undir, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá lögreglustjóranum Austurlandi.

Viðbragðsaðilar voru strax ræstir út, björgunarsveitir á svæðinu og þyrla Landhelgisgæslu reiðubúin að fara af stað með hjálparlið og búnað. Aðgerðastjórn í umdæminu var virkjuð og samhæfingarstöð Almannavarna.

„Um klukkan 16:30 var viðkomandi fundinn og laus undan flóðinu með aðstoð félaga síns. Hann var í kjölfarið fluttur undir læknishendur með sjúkrabifreið. Ekki er talið að meiðsl hans séu alvarleg en lerkaður eftir,“ segir lögreglan.

Viðbragðsaðilar voru þá kallaðir til baka, rétt um klukkan 16:40. Snjóflóðaeftirlit Veðurstofu var strax upplýst um atvik. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert