Pálmatréð þarf að bíða í nokkur ár enn

Á þessu svæði er ráðgert að Vörputorg yrði í Vogabyggð.
Á þessu svæði er ráðgert að Vörputorg yrði í Vogabyggð. mbl.is/Eyþór

Enn er nokkur bið á að uppbyggingu ljúki í hinu nýja hverfi Vogabyggð í Reykjavík. Undirbúningur stendur yfir við skipulag svæðisins í kringum hið svonefnda Vörputorg en þar á umdeilt pálmatré að standa þegar fram líða stundir. Fimm ár eru nú liðin síðan kynnt var að pálmatré í glerhólki myndu prýða hið nýja hverfi.

Pálmatré í glerhólkum eiga að verða einkenni Vogabyggðar.
Pálmatré í glerhólkum eiga að verða einkenni Vogabyggðar. Teikning/hönnun/Karin Sander

Samkvæmt upplýsingum frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar er dómnefnd að störfum í tengslum við samkeppni um hönnun á samþættum grunn- og leikskóla, frístunda- og félagsmiðstöð og brú á umræddu svæði.

Dómnefndin bíður eftir niðurstöðu úr kostnaðarmati og áhættugreiningu og stefnt er að því að ljúka því eigi síðar en 15. mars, segir í skriflegu svari borgarinnar við fyrirspurn Morgunblaðsins.

Nán­ari um­fjöll­un er að finna í Morg­un­blaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert