Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar í viðbragðsstöðu

Skjálfta­virkni við Sund­hnúkagígaröðina jókst upp úr klukk­an 16 í dag.
Skjálfta­virkni við Sund­hnúkagígaröðina jókst upp úr klukk­an 16 í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar er í viðbragðstöðu þar sem kvikuhlaup er talið vera hafið á Reykjanesskaga að mati Veðurstofu.

Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við mbl.is.

Skjálfta­virkni við Sund­hnúkagígaröðina jókst upp úr klukk­an 16 í dag. 

„Ef eldgos hefst flýgur Landhelgisgælan með vísindamenn yfir svæðið til að meta umfang þess og eins og staðan er núna er búið að kalla þyrlusveitina út til þess að vera í þessari viðbragðsstöðu, alveg eins og hin skiptin,“ segir Ásgeir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert