Hreinn Friðfinnsson látinn

i8 gallerí minnist Hreins Friðfinnssonar.
i8 gallerí minnist Hreins Friðfinnssonar. mbl.is/Þorkell

Myndlistarmaðurinn Hreinn Friðfinnsson er látinn, 81 árs að aldri. 

Hreinn fæddist í Dalasýslu árið 1943, en bjó í Amsterdam frá árinu 1971.

Í tilkynningu frá i8 gallerí er Hreins minnst og honum þakkað fyrir samstarf sem varði í næstum 30 ár.

Í tilkynningunni segir að verkum Hreins hafi verið lýst sem lýrískri konseptlist sem snerti á tíma, umhverfi, frásögn, minni og skynjun. 

Ljósmynd/Aðsend

Samstarf i8 gallerís og Hreins hófst árið 1995 þegar hann opnaði sýningu í galleríinu sem leiddi til tæplega 30 ára samstarfs milli Hreins og i8. 

„Vægi Hreins í listheiminum og áhrif hans á okkur í i8 eru ómælanleg. Hans verður sárt saknað,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert