Mjög brugðið vegna misnotkunar sérfræðileyfa

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Eggert Jóhannesson

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir það koma sér gríðarlega á óvart að hægt hafi verið að flytja inn starfsmenn á veitingahús undir þeim formerkjum að þeir væru sérfræðingar. 

Þetta segir hann um fréttir þess efnis að Quang Lé, sem situr nú í gæsluvarðhaldi grunaður um mansal og peningaþvætti, hafi flutt inn starfsfólk sem sagt var búa yfir sérfræðiþekkingar í asískri matargerð.

Vantar sérfræðinga til Íslands

Samtök iðnaðarins hafa lengi talað fyrir þessum sérfræðileyfum. 

„Við hjá Samtökum iðnaðarins höfum undanfarin ár talað mjög fyrir hugverkaiðnaði og vexti hans. Þá höfum við birt greiningar sem sýna að það vantar þúsundir sérfræðinga til starfa í iðnaðinum næstu árin.“

Sigurður segir að menntakerfið muni ekki anna þessari þörf, en um er að ræða mjög sérhæf störf oft á tíðum. Það þurfi því að flytja inn erlenda sérfræðinga sem geta komið í þessi störf.

Þessir sérfræðingar eru til dæmis forritarar, líffræðingar og efnafræðingar að hans sögn. Segir hann að sérfræðingarnir starfi í fjölbreyttum fyrirtækjum hér á landi. 

Full ástæða til að endurskoða kerfið

Aðspurður um hvort að það þurfi að setja á frekari hömlur á þessi sérfræðileyfi segir Sigurður fulla ástæðu til að skoða það ef það er verið að nota kerfið og stofnanir þess til að flytja fólk til landsins sem ekki eru sérfræðingar. 

Afgreiðsla umsókna af þessu tagi er í höndum bæði Útlendingastofnunar og Vinnumálastofnunar.

„Mér er mjög brugðið að heyra það að matsölustaðir geti flutt inn fólk á þessum grundvelli. Ég hafði bara ekki hugarflug í það að þetta kerfi yrði einhvern veginn notað í þeim tilgangi og það kemur mér verulega á óvart.“

Hann segist vita af fjölmörgum íslenskum fyrirtækjum sem nýta sér þessi sérfræðileyfi á réttum forsendum og hefur kerfið virkað sem skyldi heilt yfir að hans sögn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert