Tíu pósthúsum verður lokað

Breytingar eru fyrirhugaðar hjá Póstinum.
Breytingar eru fyrirhugaðar hjá Póstinum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tíu pósthúsum verður lokað í byrjun júní víðs vegar um landið.

Fram kemur í tilkynningu frá Póstinum að til standi að loka fimm samstarfspósthúsum og jafnmörgum pósthúsum í eigin rekstri.

Sendingar verða afgreiddar af bílstjórum póstbíla og í póstboxum á Hvammstanga, Siglufirði, Dalvík, Ólafsfirði, Búðardal, Grundarfirði, Fáskrúðsfirði, Eskifirði, Breiðdalsvík og Neskaupstað. 

Á flestum þessara staða er þegar komið upp póstbox en í Búðardal, Ólafsfirði, á Breiðdalsvík og Siglufirði verða sett upp póstbox í næsta mánuði.

„Dregið hefur úr eftirspurn eftir afgreiðsluþjónustu pósthúsa. Þar af leiðandi er lagt upp úr að þróa annars konar lausnir. Okkar ánægðustu viðskiptavinir eru þeir sem nota póstbox. Nú er meira að segja líka hægt að póstleggja sendingar í póstbox. Eftir sem áður eru póstboxin opin árið um kring allan sólarhringinn,“ segir Kjartan Flosason, forstöðumaður pósthúsa, í tilkynningunni.

Hann segir að breytingarnar hafi áhrif á sex stöðugildi. Nokkrum starfsmönnum var boðið annars konar starf eða flutningur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert