Örn Viðar ráðinn framkvæmdastjóri Fasteignafélagsins Þórkötlu

Örn Viðar Skúlason.
Örn Viðar Skúlason.

Stjórn Fasteignafélagsins Þórkötlu ehf. hefur ráðið Örn Viðar Skúlason sem framkvæmdastjóra félagsins.

Örn Viðar lauk meistaraprófi  í hagverkfræði frá Tækniháskólanum í Berlín og meistaraprófi í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík.  Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og rekstri fyrirtækja og hefur undanfarin ár starfað sem fjárfestingarstjóri hjá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins ásamt því að sitja í stjórnum fjölmargra sprotafyrirtækja.  

Örn Viðar starfaði áður við eign rekstur, sem forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar og fjárfestinga hjá SPRON, sem framkvæmdastjóri Iceland Seafood og framkvæmdastjóri markaðssviðs og aðstoðarforstjóri SÍF samstæðunnar, að því er segir í tilkynningu. 

Fyrir liggja fjölmargar umsóknir um að Fasteignafélagið Þórkatla ehf. kaupi íbúðarhúsnæði í Grindavík og er lögð sérstök áhersla á að hraða uppbyggingu félagsins til þess að koma framkvæmd kaupanna í ferli, segir enn fremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert