Lilja bjartsýn á áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra. Kristinn Magnússon

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, er bjartsýn á að ríkisstjórnarsamstarfið haldi áfram fari Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í forsetaframboð. Þá segir hún að mikilvægt að sjá hvernig þessi vika þróast. 

Þetta sagði Lilja í Kastljósi fyrr í kvöld. 

Ríkisstjórnarflokkarnir unnið lengi og vel saman

Hávær orðrómur um mögulegt forsetaframboð forsætisráðherra hefur verið áberandi síðustu vikur og hefur Katrín sjálf ekki útilokað framboð. 

Í Kastljósi segir Lilja að Katrín hafi staðið sig mjög vel sem forsætisráðherra og ef Katrín hafi áhuga á forsetaframboði komi það líklega í ljós í vikunni.

„Varðandi ríkisstjórnarsamstarfið hafa þessir flokkar unnið lengi og vel saman og ég er auðvitað bjartsýn á það að það haldi áfram og að við finnum lausn á þessu saman,“ segir Lilja. 

Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins fundar um mögulegt framboð

Hild­ur Sverr­is­dótt­ir, þing­flokks­formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, hef­ur ákveðið að boða þing­flokk Sjálf­stæðis­flokks­ins á fund á morg­un vegna mögu­legs for­setafram­boðs Katrín­ar Jak­obs­dótt­ur for­sæt­is­ráðherra.

Lilja hefur ekki heyrt frá sínum þingflokksformanni hvað þetta varðar og bætir við að forsætisráðherra þurfi fyrst að gera grein fyrir því hvað hún ætlar sér.

Sjálf óviss hvort Katrín bjóði sig fram

Þegar spurð hvort hún telji að Katrín bjóði sig fram segir Lilja ekki geta sagt til um það.

„Stundum held ég það og stundum ekki. Hún hefur ekki greint mér frá því.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert