Formaður Landsbjargar segir af sér

Fráfarandi formaður, Otti Rafn Sigmarsson, ásamt Borghildi Fjólu Kristjánsdóttur og …
Fráfarandi formaður, Otti Rafn Sigmarsson, ásamt Borghildi Fjólu Kristjánsdóttur og Jóni Inga Sigvaldasyni eftir fund stjórnar Slysavarnafélagsins Landsbjargar í kvöld. Ljósmynd/Slysavarnafélagið Landsbjörg

Á stjórnarfundi Slysavarnafélagsins Landsbjargar í kvöld tilkynnti Otti Rafn Sigmarsson að hann segði formlega af sér sem formaður félagsins.

Í tilkynningu sem félagið sendi frá sér í kvöld segir að Otti Rafn hefur frá því í nóvember síðastliðnu  verið í leyfi frá formennsku sökum þeirra náttúruhamfara sem geisað hafa í og við Grindavík, hans heimabæ.

Borghildur Fjóla nýr formaður

„Otti Rafn sér sér ekki fært að sinna formennsku af þeim krafti sem hann hafði metnað til vegna þeirra verkefna sem náttúran í raun varpaði í fang hans. Fjölskylda, atvinna og fyrirsjáanleg uppbygging verða á þessum tíma að hafa forgang.“

Samkvæmt tilkynningunni samþykkti Stjórn félagsins einróma á fundinum að varaformaður þess, Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir verði nýr formaður. Hún hefur gengt störfum formanns í fjarveru Otta Rafns. 

Jón Ingi Sigvaldason mun taka við varaformennsku tímabundið fram að næsta landsþingi sem verður haldið í maí 2025 á Selfossi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert