Geta birt stefnur með rafrænum hætti

Margrét Anna Einarsdóttir, stofnandi og forstjóri Justikal.
Margrét Anna Einarsdóttir, stofnandi og forstjóri Justikal. Ljósmynd/Justikal

Hugbúnaðarfyrirtækið Justikal hefur sett á markað tvær nýjar stafrænar lausnir sem gerir aðilum í dómsmálum kleift að meðhöndla gögn á öruggan og rekjanlegan hátt.

Önnur lausnin snýr að því að nú er loks hægt að birta stefnur og önnur gögn með rafrænum hætti, en hin lausnin gengur út á að nú er hægt að hefja undirbúning að málum rafrænt áður en þau eru send til dómstóla.

Einfalt og öruggt ferli

Margrét Anna Einarsdóttir, stofnandi og forstjóri Justikal, segir í tilkynningu frá félaginu að starfsfólk þess sé afar ánægt með þessar tvær nýju lausnir, sem tengist markmiðum Justikal um að gera málsmeðferðina fyrir dómstólum hraðari, þægilegri og skilvirkari.

„Það var orðið mjög brýnt að okkar mati að geta birt stefnur og önnur gögn með rafrænum hætti. Með öruggri rekjanlegri gagnasendingarþjónustu Justikal er hægt að tryggja að einungis skilgreindur viðtakandi fái umrætt skjal. Ferlið er mjög einfalt bæði fyrir sendanda og viðtakanda og fyllsta öryggis gætt með rafrænum undirskriftum á skjölum þar sem báðir aðilar þurfa að auðkenna sig," segir Margrét Anna í tilkynningunni.

Margrét segir einnig mikilvægt að geta hafið undirbúning að málum rafrænt áður en þau eru send til dómstóla.

„Fjöldinn allur af ágreiningsmálum fara ekki alla leið fyrir dómstóla eða leysast áður en þangað er komið. Mörg þeirra þurfa ekki aðkomu dómara svo að niðurstaða sé fengin. Þó svo að mál þarfnist ekki aðkomu dómstóla, þá eiga þau það sameiginlegt með þeim sem það þurfa, að oft á tíðum er verið að miðla viðkvæmum skjölum og upplýsingum á milli aðila,“ segir Margrét Anna.

„Áður, þegar mál voru stofnuð í Justikal voru þau strax send til dómstóla. Nú gefst notendum kostur á að búa til almenn mál og vinna í þeim yfir lengra tímabil. Notendur geta síðan með einföldum hætti breytt almennu máli í dómsmál og sent það inn til dómstóla," segir Margrét.

Hægt að deila athugasemdum í rauntíma

Notendur hafa nú tvo valkosti í kerfinu þegar þeir stofna ný mál, annars vegar almennt mál og hins vegar dómsmál. Þegar notendur stofna almenn mál í kerfinu geta þeir á þægilegri hátt en áður unnið með öðrum notendum við vinnslu mála. Þeir geta gert persónulegar athugasemdir við skjöl og deilt þeim í rauntíma með völdum málsaðilum.

,,Okkar markmið er alltaf að vinna með skilvirkari hætti og okkur hlakkar til að sjá hvernig þessir tveir nýju eiginleikar muni nýtast markaðnum," segir Margrét að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert