Hraunbreiðan um 6 ferkílómetrar

Ljósmynd/Hörður Kristleifsson

Eldgosið við Sundhnúkagígaröðina heldur áfram og nú eru tveir gígar virkir. Það slokknaði í þriðja gígnum um páskana, en hann var mun minni en hinir tveir. Gosórói er áfram stöðugur.

Sérfræðingar Landmælinga Íslands hafa unnið úr gervitunglagögnum frá 27. mars sem sýna að hraunbreiðan var þá 5,99 ferkílómetrar og rúmmál hrauns frá upphafi gossins 25,7 ± 1,9 milljónir rúmmetra, að því er segir í færslu á vef Veðurstofu Íslands. 

Þá segir, að meðalflæði hrauns frá gígunum á tímabilinu 20. - 27. mars hafi verið metið 7,8 ± 0,7 rúmmetrar á sekúndu  sem sé mjög sambærilegt við hraunflæðið í fyrsta fasa eldgossins í Geldingadölum 2021.

Taka loftmyndir af svæðinu á næstu dögum

„Stefnt er að því að taka loftmyndir af svæðinu á næstu dögum til að fá uppfærðar tölur um hraunflæði frá 27. mars sem myndu varpa skýrara ljósi á virkni gossins. Meðfylgjandi kort sýnir útbreiðslu hraunsins og þykkt þess eins og það var 27. mars,“ segir jafnframt. 

Kort sem sýnir útbreiðslu og þykkt þess hrauns myndast hefur …
Kort sem sýnir útbreiðslu og þykkt þess hrauns myndast hefur í eldgosinu sem nú stendur yfir. Fjólubláar þekjur sýna hraun sem hafa runnið á svæðinu frá desember 2023. Kort/Veðurstofa Íslands

Þá kemur fram, að Landris í Svartsengi hafi ekki mælst síðustu daga sem bendir einkum til þess að kvikan safnist síður fyrir í kvikuhólfinu undir Svartsengi en flæði frekar beint út um gosopin. Mögulega sé komið á jafnvægi í aðstreymi kviku inn undir Svartsengi og upp úr gígunum, en jarðefnafræðimælingar gætu staðfest það á næstunni.

Hættumat óbreytt

„Hættumat hefur verið uppfært og gildir frá kl: 15:00 í dag þangað til 9. apríl, að öllu óbreyttu. Engar breytingar eru á hættumatinu og áfram er hætta af völdum gasmengunar metin mikil á öllum svæðum nema Sundhnúkagígaröðinni (svæði 3) þar sem hún er metin mjög mikil. Hætta á svæði 4 (Grindavík) og svæði 6 eru áfram metin mikil vegna jarðfalls ofan í sprungu, sprunguhreyfinga, hraunflæðis og gasmengunar,“ segir enn fremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert