Pétur ráðinn bæjarstjóri í Hveragerði

Njörður Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar og Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, formaður bæjarráðs …
Njörður Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar og Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, formaður bæjarráðs undirrita ráðningasamning við Pétur G. Markan. Mynd/Hveragerðisbær

Pétur G. Markan hefur verið ráðinn sem bæjarstjóri í Hveragerðisbæ. Tillaga þess efnis var samþykkt með fimm atkvæðum meirihluta Framsóknar og lista Okkar Hveragerðis á bæjarstjórnarfundi í dag. Fulltrúar minnihlutans í D-listanum sátu hjá við afgreiðslu tillögunnar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hveragerðisbæ en þar segir ennfremur:

„Pétur hefur sinnt embætti biskupsritara og stýrt samskiptamálum kirkjunnar og verið sem slíkur hluti af yfirstjórn Þjóðkirkjunnar. Þar á undan var Pétur sveitarstjóri Súðavíkurhrepps og leiddi hagsmunabaráttu sveitarfélaga á svæðinu sem formaður fjórðungssambands Vestfjarða og formaður Vestfjarðarstofu.“

Mikilvæg uppbyggingarverkefni

„Framundan eru mikilvæg uppbyggingarverkefni sem öll eiga þann söng að efla velferð og þjónustu við íbúana og þau þarf að klára. Erindi okkar, sem að sveitarfélaginu standa, er að leiða kröftuglega, af fagmennsku og ábyrgð, framsækið sveitarfélag í vexti. Fulla ferð!“ segir Pétur, sem tekur við starfi bæjarstjóra þann 1. maí næstkomandi.

Pétur tekur við bæjarstjórastarfinu af Geir Sveinssyni, sem lét af störfum í síðasta mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert