Kjúklingur innkallaður vegna gruns um salmonellu

Um er að ræða heilan kjúkling, bringur, lundir, lærakjöt, bitaa …
Um er að ræða heilan kjúkling, bringur, lundir, lærakjöt, bitaa og kryddlegnar bringur. Ljósmynd/Colourbox

Grunur um salmonellusmit í ferskum kjúklingi, sem er framleiddur af Matfugli ehf., hefur komið upp. Fram kemur í tilkynningu að frekari rannsókna sé þörf til þess að staðfesta gruninn en þangað til þykir fyrirtækinu rétt að innkalla vöruna.

Um er að ræða kjúkling með rekjanleikanúmerinu 011-24-09-3-66 og 011-24-09-2-07.

  • Vöruheiti: Ali, Bónus
  • Framleiðandi: Matfugl ehf, Völuteigi 2, 270 Mosfellsbæ
  • Lotunúmer: 011-24-09-3-66 og 011-24-09-2-07 (heill kjúklingur, bringur, lundir, lærakjöt, bitar, kryddlegnar bringur), pökkunardagur 02.04.2024 - 05.04.2024
  • Dreifing: Bónusverslanir, Krónuverslanir, Fjarðarkaup, Hagkaup, Hlíðarkaup, Kauptún, Kassinn, Nettó.

Fram kemur, að dreifing á afurðunum hafi verið stöðvuð og í samræmi við innra eftirlit fyrirtækisins sé unnið að innköllun vörunar.

„Neytendur sem keypt hafa kjúkling með þessu rekjanleikanúmeri eru beðnir um að skila honum í viðkomandi verslun eða beint til Matfugls ehf., Völuteigi 2, Mosfellsbæ.

Til að varast óróleika hjá neytendum skal það tekið fram að þessi kjúklingur er hættulaus fari neytendur eftir áprentuðum leiðbeiningum um eldun kjúklinga, sem finna má á umbúðum, steiki kjúklinginn í gegn og passi að blóðvökvi fari ekki í aðra matvöru,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert