Lögregla hafði afskipti af barnaníðingi í Dalslaug

Dalslaug í Úlfarsárdal.
Dalslaug í Úlfarsárdal. mbl.is/Sigurður Bogi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af dæmdum barnaníðingi í Dalslaug í Úlfarsárdal fyrr í dag. Sótti hann laugina á skólatíma en maðurinn sem um ræðir hefur hlotið dóm fyrir að nauðga þroskaskertum unglingsdreng og fyrir vörslu á tugum þúsunda barnaklámmynda.

Í bréfi sem var sent á foreldra í Ingunnarskóla er staðfest að lögregla hafi haft afskipti af manninum í dag. 

Í bréfi sem skólastjóri Dalskóla sendi á foreldra áður en lögreglan hafði afskipti af manninum kom fram að maðurinn spjalli reglulega við drengi í skólasundi.

„Uppgötvast hefur að í sundlaugina á skólasundstíma í 7. bekk, kemur reglulega maður, sem leitar leiða til að spjalla við drengi í skólasundi, um allt milli himins og jarðar. Þessi maður er dæmdur kynferðisbrotamaður. Hann hefur afplánað sinn dóm,“ segir Hildur í pósti á foreldra.

Vísir greindi fyrst frá bréfi skólastjóra Dalskóla. 

Sótti laugina í dag og lögregla kölluð á vettvang

Þá kom fram í bréfi skólastjóra Dalskóla að næst þegar maðurinn myndi koma yrði hann kallaður inn til forstöðumanns, ásamt skólastjórnanda og kallað á lögregluna. Með því væri reynt að fæla manninn frá sundlauginni.

Eins og fyrr segir þá sótti maðurinn í dag enn og aftur laugina og þá var þetta verkferli virkjað. Lögreglan hafði afskipti af manninum.

Nauðgaði þroskaskertum dreng

Samkvæmt heimildum mbl.is þá er um að ræða mann á sjötugsaldri sem var árið 2010 dæmd­ur í þriggja og hálfs árs fang­elsi fyr­ir að hafa tælt dreng þegar hann var 13-15 ára gam­all til kyn­maka með því að not­færa sér þroska­skerðingu hans, reynslu­leysi af kyn­lífi og tölvufíkn.

Árið 2015 var maðurinn dæmdur í tveggja ára og átta mánaða óskil­orðsbundið fang­elsi fyr­ir vörslu á tug­um þúsunda barnaklám­mynda og brot á vopna­lög­um. Alls fund­ust 45.236 ljós­mynd­ir og 155 hreyfi­mynd­ir sem sýndu börn á kyn­ferðis­leg­an og klám­feng­inn hátt í fór­um hans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert