Lögreglan lýsir eftir 17 ára dreng

Fadi S.M. Bahar.
Fadi S.M. Bahar. Ljósmynd/Lögreglan

Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Fadi S.M. Bahar, 17 ára, að beiðni barnaverndaryfirvalda.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu, að Fadi sé grannvaxinn og um 70 kg, 175 sm á hæð, með krullað hár og brún augu.

„Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Fadi, eða vita hvar hann er niðurkominn, eru beðin um að hafa samband við lögreglu í síma 112, eða með tölvupósti á netfangið sudurnes@logreglan.is.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert