Myndarlegur styrkur Rio Tinto til Rauða krossins

Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi, Kristín Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri …
Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi, Kristín Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins, og Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, við afhendingu styrksins. Ljósmynd/Rauði krossinn.

Rio Tinto hefur veitt Rauða krossinum á Íslandi styrk að upphæð 208 milljónir króna til stuðnings samfélagsins sem hefur orðið fyrir áhrifum jarðskjálfta og eldgosa í og við Grindavík.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rio Tinto og Rauða krossins en þar kemur fram að um sé að ræða hæsta styrk sem fyrirtæki hefur veitt Rauða krossinum á Íslandi til verkefna innanlands.

Styrkurinn kemur úr Hamfarasjóði Rio Tinto en sjóðnum er sérstaklega ætlað að styðja við samfélög á starfssvæðum fyrirtækisins sem hafa orðið fyrir barðinu á hvers kyns hamförum. Rio Tinto á Íslandi, sem rekur álverið í Straumsvík, hefur síðustu mánuði unnið að því að greiða fyrir styrkveitingunni vegna jarðhræringanna á Reykjanesi og áhrifa þeirra á samfélagið í Grindavík og víðar.

Á næstu vikum verður gerð frekari grein fyrir hvernig styrkurinn verður nýttur en áhersla verður lögð á að styrkja samfélagið sem hefur orðið fyrir mestum áhrifum af þessum náttúruhamförum. Markmiðið er að bæta viðnámsþrótt  þeirra sem búa á svæðinu og verður verkefnið unnið í nánu samstarfi við þá sem eiga mestra hagsmuna að gæta.  

Án fordæma fyrir verkefni á Íslandi

„Rauða krossinum er það mikil ánægja að fá tækifæri til að koma þessum veglega styrk í mikilvægan farveg,“ segir Kristín Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins. „Styrkveiting af þessu tagi er án fordæma fyrir verkefni á Íslandi, dæmi um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja og hvað það getur skipt miklu máli fyrir samfélagið. Rauði krossinn og Grindavíkurbær hafa staðið þétt saman i gegnum þessa erfiðu tíma og munu halda því áfram.“

Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík, er þakklátur fyrir þennan veglega styrk frá Rio Tinto.

„Starfsfólkið í Straumsvík sýnir okkur mikinn hlýhug og stuðning með því að hugsa til okkar og vinna að því að fá styrk af þessu tagi okkur til handa. Við Grindvíkingar erum að máta okkur við þann veruleika sem blasir nú við okkur og vinna úr því mikla áfalli sem á okkur hefur dunið,“ segir Fannar.

Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi, segir að Álverið í Straumsvík hafi verið mikilvægur þátttakandi í íslensku samfélagi í 55 ár.

„Við höfum mikla samkennd með þeim sem hafa orðið fyrir áhrifum jarðhræringanna á Reykjanesi síðustu misseri,“ segir Rannveig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert