Heiða María og Þórhildur hlutu hvatningarverðlaunin

Dr. Þórhildur Halldórsdóttir og Dr. Heiða María Sigurðardóttir, handhafar hvatningarverðlauna …
Dr. Þórhildur Halldórsdóttir og Dr. Heiða María Sigurðardóttir, handhafar hvatningarverðlauna Rannsóknasjóðs 2024 og 2023. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Dr. Heiða María Sigurðardóttir, prófessor við sálfræðideild Háskóla Íslands, og Dr. Þórhildur Halldórsdóttir, lektor við sálfræðideild Háskólans í Reykjavík, hlutu hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs fyrir árin 2023 og 2024.

Verðlaunin voru afhent á Rannsóknaþingi Rannís í gær en frá þessu er greint í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Hvatningarverðlaunin eru veitt vísindafólki sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað fram úr og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi sem treystir stoðir mannlífs á Íslandi. Þau voru fyrst veitt árið 1987 en markmið þeirra er að hvetja vísindafólk til dáða og vekja athygli almennings á mikilvægi starfa þeirra.

Afkastamikill rannsakandi

Dr. Heiða María er sérfræðingur í taugavísindum með sérstaka áherslu á hugræn taugavísindi. 

Heiða lauk grunnnámi í sálfræði við HÍ árið 2005 og varði doktorsritgerð sína frá taugavísindadeild Brown-háskóla í Bandaríkjunum árið 2013. Hún hefur síðan stundað rannsóknir og kennslu við HÍ og tók við stöðu lektors við sálfræðideild skólans árið 2016 og hlaut framgang í stöðu prófessors árið 2023.

Í tilkynningunni segir að hún sé afkastamikill rannsakandi go meðhöfundur fleiri tuga vísindagreina sem safnað hafa hundruðum tilvitnana. Þá hafi hún leitt fjölmörg rannsóknaverkefni.

Dr. Þórhildur er sérfræðingur í klínískri barnasálfræði með sérstaka áherslu á áhættu og verndarþætti sem móta líðan hjá börnum og ungmennum.

Tvinnar saman ólík fræðasvið

Þórhildur lauk grunnnámi í sálfræði við HÍ árið 2008, meistaranámi í klínískri barnasálfræði frá Virginia Tech háskólanum í Bandaríkjunum árið 2011 og doktorsnámi frá sama skóla árið 2014.

Þórhildur starfaði sem nýdoktor hjá Max Planck stofnuninni fyrir geðlækningar í Þýskalandi áður en hún sneri aftur til Íslands. Hún var ráðin lektor við HR árið 2019 og hefur frá árinu 2021 leitt nýtt rannsóknarsetur um samspil umhverfis og erfða innan skólans.

Í tilkynningunni segir að hún hafi skapað sér sérstöðu með því að tvinna saman ólík fræðasvið, sálfræði, erfðafræði og faraldsfræði,  í þeim tilgangi að rannsaka áhættu- og verndarþætti sem móta líðan barna. 

Hún hefur skarað fram úr þegar kemur að rannsóknum og verið meðhöfundur tæplega 40 rannsóknagreina sem safnað hafa um tvö þúsund tilvísunum. Þar að auki hefur hún leitt fjölmörg rannsóknaverkefni sem hlotið hafa styrki úr bæði innlendum og erlendum rannsóknasjóðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert