Seldi fíkniefni fyrir framan nefið á lögreglunni

Lögreglan að störfum.
Lögreglan að störfum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglumenn voru við almennt eftirlit í Reykjavík þegar þeir sáu ætlaða fíkniefnasölu eiga sér stað fyrir framan nefið á þeim. Meintur fíkniefnasali var handtekinn og fannst við leit töluvert magn af fíkniefnum og peningum. Hann var vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar.

Sex gista fangaklefa lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir verkefni gærkvöldsins og næturinnar og alls voru 69 mál bókuð í kerfum lögreglunnar, að því er kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Ungmenni tekið með tvo hnífa 

Ungmenni var handsamað í miðbæ Reykjavíkur eftir að hafa reynt að ljúga til nafns og í kjölfarið reynt að hlaupa frá lögreglunni með slæmum árangri. Ungmennið reyndist vera með tvo hnífa á sér. Málið var leyst  með aðkomu barnaverndaryfirvalda.

Lögreglan var kölluð að slysadeild vegna einstaklings sem var þar í miklu ölvunarástandi og lét öllum illum látum. Þegar lögreglu bar að garði reyndi hann að ráðast að öryggisverði og lögreglu. Fór svo að hann var vistaður í fangaklefa þar til hægt verður að ræða við hann.

Annað ungmenni var handsamað í miðbænum eftir að hafa neitað að segja til nafns að kröfu lögreglu. Reyndist það vera með ætluð fíkniefni á sér. Málið var leyst með aðkomu barnaverndaryfirvalda.

Í slæmu ástandi sökum ölvunar

Þó nokkrar tilkynningar bárust umdæmi lögreglunnar í Hafnarfirði og Garðabæ vegna fólks í slæmu ástandi sökum ölvunar. Málin voru öll leyst á vettvangi og var nokkrum ekið til síns heima.

Einn var handtekinn eftir ölvunarakstur, árekstur og afstungu. Hann var vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.

Einn ökumaður var stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Hann var fluttur á lögreglustöð í venjubundið ferli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert