FG-ingar söfnuðu 360 þúsund krónum í dósapening

Nemendurnir söfnuðu tvöfalt fleiri dósum en í fyrra.
Nemendurnir söfnuðu tvöfalt fleiri dósum en í fyrra. Ljósmynd/Aðsend

Nemendur í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ stóðu fyrir dósa­söfn­un á dög­un­um fyr­ir Ein­stök börn. Söfnuðu nemendurnir rúmlega 360 þúsund krónum.

Söfn­un­in var hluti af loka­verk­efni nem­end­anna í áfanganum Viðburðastjórn­un. Verkefnið er tileinkað Félagi einstakra barna, sem er stuðningsfélag fyrir börn með sjaldhæfa sjúkdóma og heilkenni.

Sama verkefni var unnið í fyrra og þá söfnuðust 165 þúsund krón­ur. Í ár söfnuðu nemendur þannig yfir helmingi meira.

Nemendurnir greina frá þessu í tilkynningu sem þeir sendu mbl.is. Nemend­ur buðust til þess að sækja dós­ir heim til fólks og tóku einnig á móti dós­um frá nemend­um og starfsfólki við skól­ann.

„Gekk vonum framar“

Hóp­ur­inn safnaði dósunum saman í skólann og hjálpaðist síðan að við að flytja þær í endurvinnslu, að því er fram kemur í tilkynningunni. Gríðarlega góð samvinna var innan hópsins og nemendur eru ánægðir með útkomu verkefnisins.

„Söfnunin gekk vonum framar og nemendur áfangans stóðu sig vel. Vonandi fáum við jafn góðar viðtökur á næsta ári,” er haft á eftir Ingvari ­Arnarsyni í tilkynningunni en hann kenn­di áfang­ann.

Viðburðurinn hefur verið haldinn síðastliðin tvö ár og vonast er til að hann haldi áfram á næstu árum, segir í tilkynningunni, en áfanginn er kenndur á hverju vori.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert