Stefna á uppbyggingu íshellis

Eftirspurn er eftir afþreyingu eins og íshellaskoðun.
Eftirspurn er eftir afþreyingu eins og íshellaskoðun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Sveitarfélagið Bláskógabyggð vinnur nú að skipulagsbreytingum til að heimila uppbyggingu íshellis.

„Við erum búin að skipuleggja eina lóð uppi á jökli fyrir íshelli og svo erum við að vinna að skipulagsbreytingu þannig að það verða þá tvær lóðir þar sem er heimilt að vera með íshella,“ segir Helgi Kjartansson oddviti Bláskógabyggðar í samtali við Morgunblaðið.

Hann bindur vonir við að ferlinu ljúki í sumar og svo í kjölfarið verði lóðirnar auglýstar. Helgi segir að fara verði eftir þjóðlendulögum í þessu ferli en hellirinn yrði á þjóðlendu.

„Við höfum fundið fyrir áhuga aðila sem vilja fá lóðir og bjóða upp á upplifunarferðir. Þá höfum við líka meiri stýringu á öllu þannig að menn hafi aðstöðu og geti tryggt öryggi ferðamanna. Það verður að vera ákveðið utanumhald.“

Umfjöllunina í heild sinni má nálgast í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert