Hlaupið til góðs

Á Kvennadeild Landspítalans vantar nauðsynlega ný tæki til legspeglunar sem munu létta bæði læknum og skjólstæðingum lífið. Með nýju tækjunum er hægt að framkvæma speglanir í staðdeyfingu en áður var nauðsynlegt að svæfa þær konur sem þurftu á legspeglun að halda. Kvensjúkdómalæknirinn Ragnheiður Oddný Árnadóttir, sem bæði vinnur á kvennadeild og situr í stjórn Lífs, mætti í Dagmálsmyndver Árvakurs til að segja frá góðgerðarhlaupinu. 

Allur ágóði til Lífs

„Við erum mjög stolt af því að halda þetta hlaup og um leið hvetja til hreyfingar. Hlaupið verður frá bragganum í Nauthólsvík á fimmtudag klukkan 18. Við erum með tímatöku í fimm og tíu kílómetrum en einnig er hægt að fara í fimm kílómetra göngu. Það geta nánast allir verið með,“ segir hún.

„Allur ágóði rennur til Lífs. Við vorum heppin að fá góða bakhjarla, Útilíf og Sjóvá. Það verða verðlaun í boði og fullt af útdráttarvinningum,“ segir Ragnheiður og hvetur fólk til að mæta í hlaupið.

„Veruleikinn er þannig að ýmis málefni þurfa á styrktarfélögum að halda, eins og sést í Reykjavíkurmaraþoninu, en við höfum verið með þar líka,“ segir hún.

„Flestar konur hafa þurft á þjónustu kvennadeildarinnar að halda, í tengslum við meðgöngu, fæðingu, sængurlegu eða vegna meðhöndlunar kvensjúkdóma og annarra vandamála í kvenlíffærum,“ segir Ragnheiður og tekur því fagnandi að geta enn bætt þjónustuna með nýju tækjunum. Nánar er rætt við Ragnheiði í Dagmálum sem áskrifendur geta nálgast hér

Hægt er að skrá sig í hlaupið á netskraning.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert