Lagabreyting vegna styrkjakerfisins kemur til greina

Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra telur koma til greina …
Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra telur koma til greina að breyta lögum til að hægt sé að birta upplýsingar um alla sem þiggja styrk vegna rannsóknar og þróunar frá ríkinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Nei ég held ekki,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra í samtali við mbl.is spurður hvort fyrirkomulag endurgreiðslu vegna þróunar og rannsókna sé eðlilegt í núverandi mynd. Ekki fást upplýsingar um hverjir fá meirihluta endurgreiðslu sem ríkið greiðir vegna rannsókna og þróunar.

„Ástæðan er sú að Skatturinn telur sig ekki hafa lagaheimild til að birta þessar upplýsingar og birtir því aðeins styrk þeirra sem fá hærri styrk en 500 þúsund evrur,“ segir Sigurður Ingi.

Á síðustu sex árum hef­ur aðeins verið upp­lýst um þá sem þáðu end­ur­greiðslu­styrki upp á 17,2 millj­arða af þeim 37,4 millj­örðum sem veitt­ir hafa verið.

Fjármunirnir vaxið gríðarlega

„Mér finnst alveg koma vel til greina að það þyrfti að setja sérstaka lagaheimild sem myndi heimila Skattinum birtingu þessara upplýsinga sem er ekkert óalgengt þegar um styrki er að ræða,“ segir hann. 

Hann segir að frá heimsfaraldrinum hafi fjármunirnir sem fara í kerfið vaxið gríðarlega hratt og á sama tíma hafa útflutningstekjum hugverkaiðnaðar aukist.

„Þegar eitthvað vex svona hratt á stuttum tíma er líka mikilvægt að skýra regluverkið og efla eftirlit,“ segir Sigurður.

„Þetta [opinberun upplýsinganna] gæti verið eitt af því.“

Skoða breytingar á kerfinu

Þannig það má þá vænta þess að þessu verði breytt í tíð þessarar ríkisstjórnar.

„Já við erum að skoða hvernig hlutirnir gætu verið betri,“ segir Sigurður.

Og lagabreyting kemur til greina?

„Þá kæmi lagabreyting eða annað sem við þurfum að gera til greina,“ segir hann að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert