Ógnar ekki starfsemi HS Orku

Hraun rann yfir Grindavíkurveg fyrr í dag.
Hraun rann yfir Grindavíkurveg fyrr í dag. mbl.is/Hörður Kristleifsson

HS Orka fylgist vel með gangi hraunflæðisins við eldgosið við Sundhnúkagígaröðina. Hraun rann í þriðja sinn yfir Grindavíkurveg norðan varnargarðanna við Svartsengi fyrr í dag þegar hrauntjörn brast við Sýlingarfell.

„Það er ekkert sem er að ógna okkar starfsemi í augnablikinu, við fylgjumst með gangi mála og vinnum náið með almannavörnum ef grípa þarf til frekari varna á orkuverinu,“ segir Kristinn Harðarson, framkvæmdastjóri framleiðslu hjá HS Orku í samtali við mbl.is.

Kristinn Harðarson, fram­kvæmda­stjóri fram­leiðslu hjá HS Orku.
Kristinn Harðarson, fram­kvæmda­stjóri fram­leiðslu hjá HS Orku. mbl.is/Eyþór

Hraunstreymi jókst í nótt

Gos­virkni held­ur áfram í ein­um gíg við Sund­hnúkagíga og í nótt jókst hraun­streymið norður fyrir Sýl­ing­ar­fell og í átt að Grind­ar­vík­ur­vegi.

Eft­ir há­degi hóf að draga úr hraða hrauns­ins og hef­ur fram­endi hrauns­ins náð í um 800 metra fjar­lægð frá heita­vatns­lögn­um og fær­ist nær í át­inna að þeim.

Veðurstofa áætlar að áhlaup­inu sé lokið að sinni en bú­ast megi við því að það mjatlist aðeins áfram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert