Bjarkey ræður til sín aðstoðarmenn

Bjarki Hjörleifsson og Pálína Axelsdóttir Njarðvík hafa verið ráðin aðstoðarmenn …
Bjarki Hjörleifsson og Pálína Axelsdóttir Njarðvík hafa verið ráðin aðstoðarmenn Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, matvælaráðherra, hefur ráðið til sín tvo aðstoðarmenn, Bjarka Hjörleifsson og Pálu Axelsdóttur Njarðvík, að því er fram kemur í tilkynningu

Bjarki starfaði áður sem sérfræðingur hjá þingflokki Vinstri grænna frá árinu 2020 og var kosningastjóri flokksins í Norðvestur kjördæmi í tveimur síðustu alþingiskosningum. Árin 2019 til 2020 starfaði hann einnig sem skrifstofustjóri á flokksskrifstofu VG.

Hann er fæddur árið 1989, ólst upp í Stykkishólmi og útskrifaðist með BA-próf í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 2019. 

Sérkennslustýra og ráðgjafi

Pálína er fædd árið 1991, ólst upp í Gnúpverjahreppi og útskrifaðist með BSc-gráðu frá Háskóla Íslands árið 2016 og MSc í félagsfræði árið 2019.

Á árunum frá 2020 til 2022 starfaði hún sem sérkennslustýra og vann sem ráðgjafi hjá Attentus frá 2023-2024.

Pálína hefur hefur unnið sjálfstætt við efnissköpun og miðlun á samfélagsmiðlum frá árinu 2015 en hún hefur unnið sveitastörf frá unga aldri og deilt þeirri reynslu sinni á Instagram þar sem hún er með tæplega 300 þúsund fylgjendur.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert