Biggi lögga í Framsókn

Birgir Örn Guðjónsson eða Biggi lögga eins og hann er …
Birgir Örn Guðjónsson eða Biggi lögga eins og hann er kallaður. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Birgir Örn Guðjónsson, sem þekktur er undir nafinu Biggi lögga, hefur ákveðið að bjóða sig fram fyrir Framsóknarflokkinn í komandi alþingiskosningum. Rætt var við Birgi í þætti Svala og Svavars á K100 í morgun um þessa ákvörðun hans.

Birgir gerir grein fyrir þessari ákvörðun sinni í færslu á Facebook í gær.

„Bankahrunið og óréttlætið sem mitt og önnur heimili fundu fyrir í kjölfar þess kveiktu einhvern eld innra með mér í mér. Þá gat ég ekki haldið aftur að mér og fór þá að tjá mig um hlutina. Einhverra hluta vegna fóru margir að hlusta á það sem ég sagði. Kannski var það vegna þess að fólk fann samsvörun í orðum mínum og stöðu,“ skrifar Birgir sem lýsir stöðu fjölskyldunnar eftir hrun.

Hann segir að þetta hafi ekki verið auðveld ákvörðun að bjóða sig fram. „Eftir að hafa hugsað mig um og skoðað málin ákvað ég að bjóða mig fram á lista hjá þeim flokki sem stóð að því að losa fjölskylduna mína úr skuldasnörunni eftir hrunið. Flokknum sem tók ekki nei sem svar. Ég mun því bjóða mig fram á lista hjá Framsóknarflokknum. Ég fann samsvörun í stefnunni þeirra og líst ótrúlega vel á fólkið þar.

Vinna mín í lögreglunni til margra ára og lífsreynsla hefur gefið mér tækifæri til að sjá margar hliðar af samfélaginu. Sumar af þeim hliðum líta vel út, en sumar eru laskaðar og aðrar hreinlega hrundar. Ég tel mig hafa margt fram að færa fyrir samfélagið og ég er tilbúinn að skella mér í vinnugallann,“ skrifar Birgir en færsluna er hægt að lesa hér að neðan.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert