Linda sveitarstjóri í Hvalfjarðarsveit

Linda Björk Pálsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri í Hvalfjarðarsveit.
Linda Björk Pálsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri í Hvalfjarðarsveit. Af vef Hvalfjarðarsveitar

Linda Björk Pálsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri í Hvalfjarðarsveit. Linda sinnti áður starfi skrifstofustjóra sveitarfélagsins. Við því starfi tók hún um miðjan júlí í fyrra. Við sveitarstjórastarfinu mun hún taka frá 1. júlí næstkomandi.

Í frétt á vef Hvalfjarðarsveitar segir að Linda sé rekstrarfræðingur að mennt og hafi unnið hjá Landsbankanum á Akranesi um tíma. Þar áður hafi hún verið fjármálastjóri í Borgarbyggð og sveitarstjóri í Borgarfjarðarsveit á árunum 2003-2006. 

Linda er gift Karvel L. Karvelssyni og eiga þau tvö börn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert