Íslendingar drekka 9 milljónir ferna á ári

Klói og Halldóra Arnardóttir, markaðs- og vöruflokkastjóri ferskvara hjá MS.
Klói og Halldóra Arnardóttir, markaðs- og vöruflokkastjóri ferskvara hjá MS. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Einn ástsælasti drykkur þjóðarinnar, sjálf Kókómjólkin, fagnar 50 ára afmæli á árinu. Drykkurinn kom fyrst á markað árið 1973 og var fyrstu tvö árin í pappahyrnu en svo tók pappafernan við. Umbúðirnar voru þá skreyttar með mynd af ketti að hlusta á tónlist og allar götur síðan hefur köttur verið lukkudýr kókómjólkurinnar. Kötturinn Klói var fyrst nafngreindur 1990 þegar umbúðirnar fengu andlitslyftingu en hann hefur aðeins þroskast og breyst á síðustu áratugum.

Nánar má lesa um vegferð kókómjólkurinnar síðustu fimm áratugina með því að smella hér.

Umbúðir Kókómjólkur eru komnar í gulan og glaðlegan afmælisbúning.
Umbúðir Kókómjólkur eru komnar í gulan og glaðlegan afmælisbúning. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Órjúfanlegur hluti af hversdagsleikanum í hálfa öld

Í tilefni 50 ára afmælisins hefur kókómjólkin verið færð í sérstakan hátíðarbúning og eru þær nú skreyttar þremur ólíkum myndum þar sem m.a. má sjá endurgerð á myndinni sem prýddi fyrstu fernurnar; baksvipinn á ketti að njóta ljúfra tóna úr grammófóni. „Afmælisfernurnar eru skemmtileg leið til að halda upp á þessi tímamót enda erum við með eindæmum stolt og þakklát fyrir samfylgdina með kókómjólkinni í öll þessi ár,“ segir Halldóra Arnardóttir, markaðs- og vöruflokkastjóri ferskvara MS.

Smelltu hér til að horfa á 50 ára afmælisauglýsingu Kókómjólkur. 

Kókómjólkin hefur fylgt Íslendingum í hálfa öld.
Kókómjólkin hefur fylgt Íslendingum í hálfa öld. Ljósmynd/MS

„Nostalgían fær líka að njóta sín í nýrri kókómjólkurauglýsingu í leikstjórn Hannesar Þórs Halldórssonar en þar er sögð sagan af einstakri vináttu sem spannar hálfa öld. Aðalhlutverkin í auglýsingunni eru höndum stórleikarans Hilmars Guðjónssonar og þriggja ungra og upprennandi leikara sem fara algjörlega á kostum í hlutverkum sínum,“ bætir Halldóra við og hvetur alla vini Klóa til að kíkja á auglýsinguna.

Halldóra segir kraftmikil ævintýri bíða Klóa og Kókómjólkurinnar í komandi …
Halldóra segir kraftmikil ævintýri bíða Klóa og Kókómjólkurinnar í komandi framtíð. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Drykkur allra landsmanna

Kókómjólk hefur fyrir löngu unnið hug og hjörtu Íslendinga enda passar hún vel með súkkulaðisnúð eða einni með öllu, með banana eftir góða íþróttaæfingu eða ein sér hvenær sem er. Margir tengjast kókómjólkinni sérstökum böndum og eiga góðar minningar úr æsku henni tengdar.

„Kókómjólkin hefur verið ein vinsælasta vara MS í hálfa öld og drekka Íslendingar um níu milljónir kókómjólkurferna á hverju ári,“ segir Ágúst Þór Jónsson, rekstrarstjóri MS Selfossi þar sem kókómjólkin er framleidd.

Ágúst Þór Jónsson, rekstrarstjóri MS á Selfossi, stendur hér við …
Ágúst Þór Jónsson, rekstrarstjóri MS á Selfossi, stendur hér við færibandið þar sem Kókómjólkin er sett í umbúðir. Ljósmynd/Aðsend

„Kókómjólkin dansar eftir færibandinu í þúsundatali í viku hverri og er síðan pakkað og dreift um allt land,“ segir Ágúst og bætir við að Mjólkursamsalan á Selfossi sé einn stærsti vinnustaðurinn í bæjarfélaginu og þar starfi um 110 manns við fjölbreytt verkefni.

Þó Klói sé vissulega borinn og barnfæddur Selfyssingur og Selfoss sé heimabær kókómjólkurinnar þá er drykkurinn án efa drykkur allra landsmanna og vonum við að sem flestir njóti afmælisársins með kókómjólk við hönd.

„Við hlökkum mikið til að sjá hvaða kraftmiklu ævintýri bíða Klóa og sístækkandi vinahóps hans um allt land í framtíðinni en kötturinn káti mun bregða á leik víða um land í sumar og taka fagnandi á móti góðum kveðjum og knúsum,“ segir Halldóra að lokum.

Klói verður á faraldsfæti í sumar og fagnar 50 ára …
Klói verður á faraldsfæti í sumar og fagnar 50 ára afmæli Kókómjólkur víða með landsmönnum. Ljósmynd/MS
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert