mbl | sjónvarp

Ómar Ingi: Vá, bíddu nú við!

ÍÞRÓTTIR  | 13. janúar | 17:15 
Ómar Ingi Magnússon var í góðum gír á æfingu íslenska karlalandsliðsins í handknattleik í München í gær.

Ómar Ingi Magnússon var í góðum gír á æfingu íslenska karlalandsliðsins í handknattleik í München í gær.

Ómar Ingi, sem er 26 ára gamall, var meðal annars spurður að því hverni væri að deila herbergi með Janusi Daða Smárasyni en þeir eru báðar frá Selfossi.

„Vá! Bíddu nú við!“ sagði Ómar Ingi þegar hann var meðal annars spurður að því hvað hann elskaði mest við herbergisfélaga sinn Janus Daða Smárason en þeir eru herbergisfélagar hjá landsliðinu og leika báðir með Evrópumeisturum Magdeburg.

„Við pössum okkur á því að taka góðar pásur inn á milli svo við fáum ekki gjörsamlegt ógeð hvor á öðrum inni á milli,“ sagði Ómar Ingi meðal annars.

Loading