mbl | sjónvarp

Þórunn Antonía deilir uppskrift að þynnkumat

FÓLKIÐ  | 9. febrúar | 8:30 
Þórunn Antonía svaraði nokkrum spurningum áður en hún steig á svið í síðasta bingóþætti. Þar deildi hún ósvikinni en óvenjulegri uppskrift að þynnkumat og viðurkenndi að hún væri mun meira fyrir bað heldur en sturtu.

Söngkonuna og skemmtikraftinn Þórunni Antoníu þarf vart að kynna fyrir landsmönnum en hún hefur verið áberandi í íslensku skemmtanalífi síðustu áratugi. Þórunn Antonía byrjaði kornung að skemmta landanum og á hún farsælan feril að baki sem söngkona.

Í síðustu viku flutti Þórunn tvö lög í bingóþætti Morgunblaðsins, mbl.is og K100 með glæsibrag og má svo sannarlega gera ráð fyrir að ungir sem aldnir bingóspilarar hafi staðið upp úr sófanum til að dilla sér við lögin.

Þórunn Antonía svaraði nokkrum spurningum áður en hún steig á svið þar sem hún deildi ósvikinni og um leið óvenjulegri uppskrift að þynnkumat og viðurkenndi að hún væri mun meira fyrir bað heldur en sturtu. Myndbandið má sjá í heild sinni hér að ofan. 

Bingóveislan með þeim Sigga Gunnars og Evu Ruzu heldur áfram annað kvöld, fimmtudaginn 10. febrúar, kl. 19.00. Það er því ekki seinna vænna en að fara að fylla á popp birgðirnar og setja sig í bingóstellingarnar. Allir sem fá BINGÓ fá vinning.

Allar nánari upplýsingar um leikreglur, bingóspjöld og vinninga má nálgast hér.

 

Loading