mbl | sjónvarp

Fríd frumflutti nýjan smell í bingóþættinum

FÓLKIÐ  | 14. febrúar | 14:30 
Tónlistarkonan Fríd er á mikilli siglingu þessa dagana. Hún frumflutti lag sitt I Thought You Were Falling Too í bingóþættinum hjá Sigga Gunnars og Evu en lagið kom út á Spotify og öðrum streymisveitum daginn eftir.

Söngkonan Sigrfíð Rut Gyrðisdóttir, eða Fríd líkt og hún kallar sig, frumflutti nýtt lag í bingóþættinum sem fram fór síðastliðinn fimmtudag. Lag hennar I Thought You Were Falling Too kom út á helstu streymisveitum á föstudaginn en Fríd og hennar föruneyti tóku forskot á sæluna og spiluðu lagið fyrir þátttakendur bingósins.

Fríd er ung tónlistarkona á uppleið. Lýsir hún tónlistarstefnu sinni sem melódísku og tilraunakenndu rafpoppi en breiðskífu frá Fríd er að vænta á allra næstu mánuðum. Flutninginn á I Thought You Were Falling Too má nálgast í spilaranum hér að ofan.

Næsti bingóþáttur er á dagskrá næstkomandi fimmtudagskvöld. Bein útsending hefst hér á mbl.is og á rás 9 á sjónvarpi Símans kl. 19.00. Allar upplýsingar um bingóið má nálgast hér.

Loading