Lög sem heimila samkynhneigðum að ganga í hjónaband tóku gildi í Taívan í dag og er þetta fyrsta ríkið í Asíu sem heimilar samkynja hjónabönd. Þrjú pör héldu upp á daginn með trompi með þrefaldri hjónavígslu og fagna þessum merka áfanga í jafnréttisbaráttunni.