Fellibylurinn Dorian er nú við strandlengju Karólínuríkjanna á leið sinni norður eftir og er á annað hundrað þúsund manna nú án rafmagns. Dorian er nú orðinn þriðja stigs fellibylur á ný og er talinn geta valdið „lífshættulegum flóðum“ við austurströnd Bandaríkjanna.