Yfirlæknir á meðferðarstofnuninni Vogi, Víðir Sigrúnarson, segir minna vera um unglingadrykkju nú á dögum, samanborið við það sem þekktist fyrir 20 árum. Hann segir viðhorfsbreytingu í samfélaginu hafa orðið þess valdandi að unglingar séu almennt seinni til að bragða á áfengi og vímuefnum í dag heldur en áður.