Svona voru búningar barnanna í gær

FÓLKIÐ  | 23. febrúar | 11:59 
Þrátt fyrir snjókomu, rigningu og gráma skemmtu börnin í höfuðborginni sér vel í Kringlunni í dag, enda var Öskudagurinn runninn upp enn á ný. Í verslunarmiðstöðinni mátti sjá börn hlaupa um og syngja gömul lög og ný í sykurvímu. Líkt og ár hvert voru búningarnir af fjölbreyttum toga.

Þrátt fyrir snjókomu, rigningu og gráma skemmtu börnin í höfuðborginni sér vel í Kringlunni í gær, enda var Öskudagurinn runninn upp enn á ný. Í verslunarmiðstöðinni mátti sjá börn hlaupa um og syngja gömul lög og ný í sykurvímu.

Líkt og ár hvert voru búningarnir af fjölbreyttum toga. Þar mátti sjá tertusneið, popp og Prins póló, risaeðlur, Strumpa og svokallaðar prinsessu-skinkur.

Mbl.is mætti á svæðið, fékk að heyra nokkur tóndæmi og tala við hressa krakka. Mörg voru þau sammála um að þó nammi væri mikilvægt sé alltaf skemmtilegast að vera með vinum sínum að syngja.

Þættir