Eitt af hverjum tíu dauðsföllum í heiminum má rekja til reykinga. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn. Helmingur þeirra sem látast af völdum reykinga búa í fjórum ríkjum: Kína, Indlandi, Bandaríkjunum og Rússlandi. Fjallað er um rannsóknina á BBC en hún er birt í The Lancet.
Undanfarna áratugi hefur verið barist gegn reykingum en þrátt fyrir það hefur reykingamönnum fjölgað í heiminum. Óttast er að reykingafólki eigi enn eftir að fjölga vegna mikillar markaðssetningar tóbaksfyrirtækja í þróunarlöndunum.
Einn af höfundum skýrslunnar, Emmanuela Gakidou, segir í viðtali við BBC að þrátt fyrir að sýnt hafi verið fram á hræðilegar afleiðingar reykinga á heilsu fólks þá reykir einn af hverjum fjórum körlum í heiminum daglega.
Reykingar eru annar stærsti áhættuþátturinn þegar kemur að heilsu fólks en rannsóknin nær til 195 landa og er gerð á tímabilinu 1990 til 2015. Samkvæmt henni reykir einn milljarður jarðarbúa daglega. Árið 2015 voru það einn af hverjum fjórum körlum og ein af hverjum 20 konum.