Vika í almyrkva á tungli

Aðfaranótt mánudagsins 21. janúar 2019 verður almyrkvi á tungli, sá fyrsti sem sést hefur frá Íslandi síðan 28. september 2015. Næst sést almyrkvi á tungli frá Íslandi 16. maí 2022. Þetta kemur fram á Stjörnufræðivefnum.

Tunglmyrkvinn hefst klukkan 02:37 en milli klukkan 04:41 og 05:43 er tunglið almyrkvað og þá rauðleitt á himninum. Myrkvinn á sér stað á næst nálægasta fulla tungli ársins.

Tunglmyrkvar verða þegar sólin, jörðin og tunglið liggja hér um bil í beinni línu. Tunglmyrkvar verða því aðeins þegar tungl er fullt og gengur inn í skugga Jarðar.

„Þrátt fyrir það verða tunglmyrkvar ekki mánaðarlega vegna þess að brautarplan tunglsins og brautarplan jarðar eru ósamsíða.

Tunglbrautin hallar um 5° frá braut jarðar og vegna hallans fellur skuggi jarðar yfirleitt undir eða yfir tunglið.

Almyrkvi tungls mun sjást frá Íslandi eftir viku.
Almyrkvi tungls mun sjást frá Íslandi eftir viku. mbl.is/Brynjar Gauti

Tunglmyrkvar sjást frá allri næturhlið jarðar, ólíkt sólmyrkvum sem sjást aðeins frá takmörkuðu svæði á jörðinni. Í þetta sinn sést myrkvinn best frá Norður- og Suður-Ameríku og að öllu leyti frá Íslandi,“ segir á Stjörnufræðivefnum.

Ekki þarf nein hjálpartæki eins og sjónauka til að sjá tunglmyrkva svo allir geta notið hans með berum augum.

Tunglmyrkvinn 21. janúar hefst eftir miðnætti þegar tunglið er hátt á lofti, nokkurn veginn í suðri í stjörnumerkinu Krabbanum.

Tunglið snertir þá hálfskugga jarðar sem er daufur. Því sést lítil sem engin breyting á tunglinu þegar þetta gerist. Það er ekki fyrr en um 70% tunglsins eru komin inn í hálfskuggann að einhverjar birtubreytingar sjást. Hálfskuggamyrkvinn verður meira áberandi eftir því sem á líður.

Þegar tunglið snertir alskuggann, klukkan 03:34, hefst deildarmyrkvi. Deildarmyrkvinn er mun greinilegri. Snemma í deildarmyrkvanum sérðu örugglega óræka sönnun þess að jörðin sem við byggjum er kúla.

Klukkan 04:41 er tunglið allt í alskugga jarðar og þá almyrkvað. Lengd almyrkvans ræðst af því hvort tunglið ferðast beint í gegnum alskuggann eða ekki.

Hraði tunglsins í gegnum skuggann er um 1 km á sekúndu svo almyrkvi getur mest staðið yfir í 1 klukkustund og 42 mínútur. Í þetta sinn stendur almyrkvinn yfir til klukkan 05:43 eða í 1 klukkustund og 2 mínútur.

Stjörnufræðivefurinn

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert