Hannes Högni nýr prófessor við HR

Dr. Hannes Högni Vilhjálmsson, prófessor í við tölvunarfræðideild Háskólans í …
Dr. Hannes Högni Vilhjálmsson, prófessor í við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík. Ljósmynd/Aðsend

Dr. Hannes Högni Vilhjálmsson hefur hlotið stöðu prófessors við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík eftir mat alþjóðlegrar hæfisnefndar. Hannes sinnir fjölbreyttri kennslu við tölvunarfræðideild og hefur meðal annars þróað ný námskeið á sviði leikjavélagerðar, máltækni og sýndarumhverfis.

Þá stundar hann þverfaglegar rannsóknir við gervigreindarsetur HR, með áherslu á hönnun, smíði og hagnýtingu félagslegra sýndarvera og gagnvirks sýndarveruleika. Hann leiddi meðal annars alþjóðlegan stýrihóp um stöðlun stýringar á samskiptahegðun vitvera, og er í forsvari fyrir fastanefnd helstu ráðstefnu um rannsóknir á því sviði „ACM International Conference on Intelligent Virtual Agents“. 

Hannes Högni hefur birt yfir 70 ritrýndar greinar, með um 5500 tilvísanir, stýrt fjölda styrktra rannsóknaverkefna og haft umsjón með yfir 35 rannsóknarverkefnum nemenda, bæði á framhalds- og grunnnámsstigi. 

Hannes hefur einnig komið að nýsköpun og frumkvöðlastarfi, en hann er á meðal stofnenda Alelo Inc. í Kaliforníu, sem hefur unnið að þróun og nýtingu félagslegra vitvera í tungumálakennslu síðan 2005 og er nú með hálfa milljón notenda í yfir 25 löndum. Hann var einnig meðal stofnenda Mind Games ehf, sem var fyrst fyrirtækja með heilabylgjustýrða leiki á Apple Store. Hann er nú hluti teymisins á bakvið Envralys, nýja  þjónustu sem nýtir sýndarveruleika til að mæla sálræn áhrif manngerðs umhverfis á fólk, áður en framkvæmdir hefjast. Að auki hefur Hannes Högni gegnt ráðgjafahlutverki hjá fjölda sprota sem vaxið hafa úr háskólaumhverfinu.

Hannes Högni lauk doktorsprófi í Miðlunarlistum og -vísindum frá MIT - Massachusetts Institute of Technology árið 2003 og meistaraprófi frá sama skóla árið 1997. Hann útskrifaðist sem tölvunarfræðingur frá Háskóla Íslands 1994. Áður en Hannes Högni kom til starfa í Háskólanum í Reykjavík árið 2006, starfaði hann sem vísindamaður hjá University of Southern California, þar sem hann hafði yfirumsjón með tækniþróun verkefnis sem nýtti tölvuleikjatækni og gervigreind við tungumálakennslu, en verkefnið hlaut tækniafreksverðlaun DARPA árið 2005.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert