Miðstöð snjallvæðingar fær 300 milljóna styrk

Maður heldur á snjallsíma.
Maður heldur á snjallsíma. AFP

Miðstöð snjallvæðingar á Íslandi hefur fengið 300 milljóna króna styrk frá Evrópusambandinu.

Ísland er hluti af áætlun ESB um stafræna Evrópu sem varir frá 2021 til 2027. Hluti af áætluninni er að stofna Evrópska miðstöð stafrænnar nýsköpunar (European Digital Innovation Hub: EDIH) hér á landi. Hún verður sett á laggirnar í haust af Auðnu tæknitorgi í samstarfi við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Rannís, Origo, Syndís ásamt fleiri samstarfsaðilum og kölluð „Miðstöð snjallvæðingar", að því er segir í tilkynningu.

Umsókn Miðstöðvar snjallvæðingar, studd af stjórnvöldum, fékk jákvæða niðurstöðu frá valnefnd ESB. Þar var staðfest að Ísland verður í hópi þeirra Evrópulanda sem munu hýsa slíkar miðstöðvar.

Tækifæri til samþættingar 

„Með tilkomu Miðstöðvar snjallvæðingar á Íslandi mun skapast tækifæri til samþættingar, samræmingar og  þekkingardreifingar á grunnþáttum snjallvæðingarinnar. Miðstöðin mun tengja þarfir við þekkingu, færni og reikniafl innanlands og jafnframt bjóða upp á prófanaumhverfi þar sem opinberir aðilar jafnt sem einkafyrirtæki geta prófað sig  áfram í nýjustu tækni án þess að leggja út í miklar fjárfestingar. Áhersla verður lögð á að virkja samlegðaráhrif og öflugt  tengslanet. Mikil áhersla verður lögð á að bæta tölvuöryggi á landinu, m.a. með áherslu á framsækin rannsóknarverkefni  og auka framboð menntunar á því sviði,“ segir í tilkynningu.  

Miðstöð snjallvæðingar í samstarfi við Rannís mun sömuleiðis vekja athygli á tækifærum til sóknar í stafrænu prógrammi ESB, sem mun verja 7,5 milljörðum evra til snjallvæðingarverkefna og því er eftir miklu að slægjast fyrir íslensk fyrirtæki á þessu sviði.

Mikilvægt skref

„Með stofnun seturs um stafræna nýsköpun á Íslandi og stuðningi Evrópusambandsins við það sem hluta af stafrænni vegferð Evrópu, er tekið mikilvægt skref í stafrænni þróun samfélagsins og skapaður vettvangur til stuðnings við nýsköpun á því sviði. Með meiri stafvæðingu spörum við fjármuni og gerum kerfið okkar skilvirkara og betra, þetta er í anda þess sem ég hef lengi talað fyrir. Aukið samstarf stjórnvalda, sveitarfélaga, háskóla og atvinnulífsins í átt að aukinni snjallvæðingu kemur því samfélaginu öllu til góðs,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar, í tilkynningunni.

Sverrir Geirdal, viðskiptaþróunarstjóri hjá Auðnu tæknitorgi og verðandi forstöðumaður Miðstöðvar snjallvæðingar, bætir við: „Það er mikið ánægjuefni að geta byrjað að skipuleggja starf EDIH. Starfið verður unnið í samstarfi margra aðila, þar sem  styrkleikar hvers og eins fá að njóta sín. Saman og með hjálp nýjustu tækni á sviði snjallvæðingar eins og skynsamlegri  notkun gervigreindar munum við skapa hér mannúðlegt og hagsælt samfélag.“

Jón Atli Benediktsson prófessor, rektor Háskóla Íslands, segir jafnframt í tilkynningunni: „Það er frábært tækifæri fyrir Háskóla Íslands að gegna  lykilhlutverki í EDIH-IS með því að nýta færni á sviði ofurtölva og gervigreindar til að örva hagnýtingu stafrænnar tækni í iðnaði á Íslandi og hjá evrópskum samstarfsaðilum Íslands.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert