Veiði hófst á neðstu svæðunum í Eyjafjarðará 1. apríl og samkvæmt upplýsingum frá ábúendum á Hrísum við ána hefur veiði farið vel af stað fyrstu dagana.
Fram kemur að á fyrstu tveimur dögunum vorveiðinnar einkenndist hún af af mikilli bleikjuveiði á neðsta svæðinu. Það veiddust rúmlega 50 bleikjur á svæðinu fyrstu tvo dagana og voru þær nánast allar á bilinu 50 til 60 cm. Innan við 10 sjóbirtingar hafa veiðst á neðsta svæðinu og flestir frekar smáir, en þó einn 67 cm. Þá hefur einnig verið nokkuð góð veiði svæðinu fyrir ofan, svokölluðu svæði 2, og svo virðist sem meira sé af sjóbirtingi þar.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Richard Jewell | 9. ágúst 9.8. |