Flott byrjun í Tungufljóti og Eldvatni

Þórarinn Ólafsson með 90 sentimetra birtinginn sem hann fékk í …
Þórarinn Ólafsson með 90 sentimetra birtinginn sem hann fékk í Hundavaði í morgun í Eldvatni. Ljósmynd/JKH
Það sem af er degi hefur fimm vænum sjóbirtingum verið landað í opnunarhollinu í Eldvatni í Meðallandi. Stærsti birtingurinn mældist 90 sentímetrar og veiddi Þórarinn Ólafsson hann á veiðistaðnum Hundavaði. Þá var einnig landað 85 og 82 sentímetra birtingum. Jón Hrafn Karlsson landeigandi við Eldvatn segir þetta vera hefðbundna opnun.

„Fiskurinn hefur verið að velta sér og sýna sig um alla á en tekur illa í þessari blíðu,“ sagði Jón Hrafn í samtali við Sporðaköst.

Litlaá í Kelduhverfi var að gefa í morgun og var búið að bóka níu urriða þar. Sá stærsti var 67 sentímetrar og veiddist hann í Veghyl.

Arnbjörn Guðjónsson sem sjóbirting úr Tungufljóti í morgun. Þeir félagar …
Arnbjörn Guðjónsson sem sjóbirting úr Tungufljóti í morgun. Þeir félagar lönduðu tólf birtingum og misstu fjóra. Ljósmynd/Aðsend

Tólf á land úr Tungufljóti

Hörkuveiði var í Tungufljóti í morgun og sagði heimildamaður Sporðakasta að tólf birtingum hefði verið landað. Eins og oft er á þessum tíma var mest af fiski á veiðistaðnum Syðri-Hólmi og þar í kring. Alls lönduðu veiðimenn tólf fiskum þar í morgun og misstu fjóra. Stærsti birtingurinn var 75 sentímetrar. Sigurður Guðmundsson, einn þeirra sem eru að veiðum fyrir austan, sagði þá hafa farið yfir alla ána og eitthvað séð af fiski á efri hlutanum. „Við tökum þessa stærri seinnipartinn,“ sagði hann að lokum.

Tveir með á í einu. Miðað við að þeir veiddu …
Tveir með á í einu. Miðað við að þeir veiddu bara í þrjá tíma var greinilega nóg um að vera. Þeir hugsa sér gott til glóðarinnar síðdegis. Ljósmynd/Aðsend

Rólegt yfir Hraunsfirði

Bjarni Júlíusson var einn þeirra sem fóru til veiða í Hraunsfirði í morgun. Hann sendi okkur stutta skýrslu um stöðuna.

Fínasta veður var í Hraunsfirði í morgun. Frekar rólegt yfir …
Fínasta veður var í Hraunsfirði í morgun. Frekar rólegt yfir veiðinni. Ljósmynd/Bjarni Júlíusson

„Flott veður hér fyrir vestan. Sex gráðu hiti, suðvestan andvari og smá súld. Gott veiðiveður. Lónið jökulkalt og lítið að gerast. Hittum veiðimenn sem höfðu verið austur af Arnarsteini í hraunkantinum og þeir höfðu sett í þriggja punda bleikju. Dálítið af mannskap, taldi 10 bíla,“ skrifaði Bjarni.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stefánsson 4. september 4.9.
101 cm Laxá í Dölum Hafþór Jónsson 27. ágúst 27.8.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðaldal Máni Freyr Helgason 11. ágúst 11.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Agnar Jón Ágústsson 10. ágúst 10.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Richard Jewell 9. ágúst 9.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert